Vetrarhlaupið
Leiðin (hjáleið um Trönuhóla)
Vegna framkvæmda við göngustíg ofan við gömlu Vatnaveitubrúnna að vestanverðu færist startið og farin er hjáleið um Trönuhóla. Annars er vegalengdin eftir sem áður 10 km og fer hlaupið fram á göngustígum í Elliðaárdal.
Hlaupið hefst á stígnum við ánna fyrir neðan Árbæjarkirkju. Hlaupið er eftir göngustíg sem liggur upp með Elliðaánum fyrir neðan skeiðvöll Fáks, beygt af yfir göngubrú við Heyvað, þaðan á malbikuðum göngustíg í átt að Suðurfelli, fyrir neðan Hóla- og Fellakirkju og áfram niður Elliðaárdalinn. Farin er hjáleið um Trönuhóla framhjá framkvæmdum sem eru í gangi og komið niður bratta brekku að Vatnsveitubrúnni, þá er beygt til vinstri og áfram niður dalinn. Framhjá Árbæjarstíflu, undir Höfðabakkabrú, áfram niður dalinn. Við undirgöng við Blesugróf er tekin hægri beygja eftir tvíbreiðum stíg yfir hólmann og yfir Elliðaár, aftur beygt til hægri og hlaupið eftir Rafstöðvarvegi upp að Árbæjarstíflu, þaðan eftir malbikuðum stíg sem liggur fyrir neðan einbýlishúsabyggðina meðfram ánni beina leið í markið.
Markið er við göngustíginn fyrir neðan gervigrasvöllinn, á sama stað og áður. Allir keppendur frá flösku af Powerade þegar þeir koma í mark.
Þátttakendur þurfa að kynna sér leiðina vel fyrir hlaup enda verður engin brautarvarsla. Þátttakendur skulu sýna öðrum vegfarendum á hlaupaleiðinni tilhlýðilega virðingu og gæta fyllsta öryggis í myrkrinu.
Sjá kort af hlaupaleið hér að neðan ásamt myndum af hjáleið um Trönuhóla.




