top of page
378255433_1590056635157581_267100360833233179_n.jpg

Hlaupið

Powerade Vetrarhlaupið verður á sínum stað næsta vetur. Alls verða hlaupin sex og verða þau haldin annan fimmtudag í mánuði, frá október fram í mars.

Dagsetning hlaupanna:

10. október 2024

14. nóvember 2024

12. desember 2024

09. janúar 2025

13. febrúar 2025

13. mars 2025

Hlaupin byrja klukkan 19:30 við Árbæjarlaugina.

Allir þátttakendur þurfa að vera með rásnúmer. Hægt er að nota rásnúmer úr fyrri hlaupum eða nálgast þau við Árbæjarlaugina fyrir hlaup (erum mættir um klst. fyrir start). Rásnúmerið er með áfastri flögu. Varist að beygla eða beygja flöguna það getur eyðilagt hana. Rásnúmerið er margnota og hægt að nota í öllum Vetrarhlaupunum ef vel er með farið, geymið því á vísum stað milli hlaupa. 



 

                                                      (dæmi um rásnúmer, flaga á bakhlið)

Skráningin í hlaupið er gerð á netskraning.is (https://netskraning.is). Skráning án rásnúmers með flögu er ekki möguleg. Þátttökugjaldið er 1000 kr. Engin skráning, enginn tími.

Aldurstakmark er 16 ára í hlaupið í ljósi þess hversu seint að kvöldi það fer fram og þess hvernig veður getur verið. Yngri en 16 ára geta tekið þátt í fylgd með fullorðnum og á ábyrgð þeirra.

Sjáumst hress.

bottom of page